Sidustu dagarnir

13
Jul
9

Jaeja..margt hefur gerst fra tvi eg bloggadi sidast!

Mig langar ad segja nakvaemlega i hvad peningurinn for sem tid styrktud skolann med, nuna er eg buin ad uthluta honum ollum og er mjog anaegd med i hvad hann for

I fyrsta lagi var keypt baekur fyrir allan skolan, oll fog, meirihluti peningsins for i tad,,enda er tetta nokkud naudsynlegt til ad skoli geti starfad :)

 

Tad var byggd girding sem breytti heilmiklu fyrir umhverfid! nuna eru ekki lengur okunnugir ad rafa um lodina ne beljur eda geitur :)

 

Vid gatum steypt tvaer kennslustofur sem voru med hraedileg golf! tannig ad tad breytti miklu lika tar sem einhverjar poddur eru i moldinni sem valda miklum otaegindum fyrir berfaetta krakka tvi taer bita og krakkarnir fa utbrot.

 

Vid gatum keypt tuttugu tre sem plantad var fyrir framan girdinguna til ad styrkja hana og gera umhverfid skemmtilegra.

 

Vid maludum skolann, tar sem ykkar peningur var nyttur i ad kaupa pensla og annad.

 

I fyrsta skiptid geta strakarnir i skolanum tekid tatt i fotboltamoti milli skola tvi tad a alltaf ad skila inn upplysingum med passamynd en hvorki skolinn ne foreldrar hafa haft efni a passamynd tannig ad tad var farid i tad ad taka myndir og saekja um inngongu i keppnirnir..strakarnir eru himinlifandi og eru byrjadir ad aefa :)

 

Eg keypti 200 stilabaekur sem eg mun faera skolanum a morgun, kennararnir geta svo uthlutad teim til teirra sem vanta.. 

 

Eg keypti fullt af boltum, sippubondum, bilum og odru doti sem eg og Bjarki munum fara med i skolann i fyrramalid, eg er viss um ad krakkarnir verda himinlifandi med tad..svo langar mig ad smyrja samlokur fyrir krakkana tannig ad tau fai eitthvad i gogginn a godum degi..vakna snemma tvi vid erum ad tala um 170 samlokur :)

 

Tetta allt var haegt ut af ykkar framlagi!! TAKK KAERLEGA!

Krakkarnir hafa oft bedid fyrir goda folkinu a Islandi sem hjalpadi skolanum svona mikid :)

 

En yfir i annad…Bjarki kom a midvikudaginn og vid erum buin ad vera a ferdalagi sidan, tad er buid ad vera yndislegt..byrjudum a ad fara ut ad borda med hostfjolskyldunni minni, sem var mjog gaman..svo heldum vid snemma af stad daginn eftir i Safari i Masai Mara..vavavava hvad tad var geggjad! saum eiginlega oll dyr..medal annars ljon, fila, blettatigra, buffalo, girafa, sebrahesta, flodhesta og fleira..tetta var eins og ad horfa a discovery channel..i eitt skiptid voru ljon ad edla sig vid hlidina a bilnum okkar!!  ein snobbud i bilnum vid hlidina a okkur tok fyrir augun og sagdi “this is so disrespectful” hahaha

 

Vid gistum i tjaldi sem var mjog fint..finasta tjald sem eg hef sed tvi aftast var klosett!..reyndar tegar eg aetladi ad nota tad einu sinni maetti mer staersta kongulo sem eg hef a aevi minni sed!! hun var jafnstor og undirskal og hun var lodin! eg var ekki lengi ad hoppa ut og na i einn hraustann kenyumann sem kippti henni ut eins og ekkert vaeri :)

 

Vid heimsottum frumbyggjatorp, tad var lika alveg magnad! Tetta voru Masai folk sem bua i kofum, tau eru tekkt fyrir ad dansa mikid, karlarnir hoppa mjog hatt og folkid er med mikid glingur og stor got i eyrunum, tad var otrulegt ad sja tetta, baedi karlarnir og konurnar donsudu fyrir okkur og sogdu okkur hvenig tau lifa. Dyrin bua inni hja teim, tau lifa a blodi, mjolk og kjoti. Karlarnir eiga margar konur, foreldrar velja fyrstu svo mega teir velja sjalfir. Strakarnir verda fullordnir tegar teir eru bunir ad veida sitt fyrsta ljon, ta fara teir in to the wild til ad veida og koma ekki heim fyrr en teir koma heim med ljonstonn og ljonsklo! Kofarnir eru byggdir af konunum ur kuamykju..tar sem tetta er kuamykja ta var ogedslega mikid af flugum tarna, vid erum ad tala um ad framan i einu barni voru a bilinu 20-50 flugur! eg taldi sko.

 

Tetta er buid ad vera geggjad, vid erum nuna i bae sem heitir Mombasa, mjog skemmtilegur baer vid strond Kenya, tannig ad vid erum buin ad vera ad rolta um og hanga a strondinni..skelltum okkur i batsferd og ulfaldalabb um strondina. Bjarka hefur annars vegar verid bodid systir eins herna og hins vegar ad skipta a mer og konu annars kenyubua..edlilegt!

 

Eg mun mjog sennilega blogga eitthvad adur en eg fer heim :)

 

mbk

Hildur Soffia

Skráð undir: kenya

TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK

30
Jun
16

Va eg a ekki til ord yfir tessar frabaeru undirtekti!! TAKK allir vinir, aettingjar, skolafelagar og ekki sist vinnufelagar Bjarka, ykkar framlag er omentanlegt!!!

Og takk lika fyrir oll kommenti! Sunna, ekki vitlaus hugmynd en tvi midur vaeri tad orugglega erfitt fyrst eg er ekki med neinar myndir eda neitt..ma kannski skoda tad tegar eg kem heim :)

Med ykkar hjalp verdur tetta allt annar skoli tegar eg fer.

Foreldrar minir budust til ad borga fyrir girdinguna, sem er mjog rausnarlegt, takk fyrir tad kaerlega. Tad er nu tegar er byrjad ad setja hana upp og gengur  vel

A laugardaginn safnadi eg saman um 15-20  manns sem maettu i skolann og hjalpudu mer ad mala allan skolann, tetta var yndislegur dagur! Vid fengum malninguna gefins fra malningafyrirtaeki med tvi skilyrdi ad lata logoid teirra einhversstadar sem var litid mal, en eg turfti ad kaupa bursta, fotur og annad tannig ad ykkar framlag skiladi ser vel..svo lekum vid okkur ad mala blom, sky, tre og sol a skolann, tetta gekk eins og i sogu og kom mjog flott ut, tetta er allt annar skoli og krakkarnir voru himinlifandi tegar tau sau hann.

Ykkar framlag var tad rausnarlegt ad vid naum ad kaupa kennslubaekur fyrir allan skolann!! A morgun mun eg og skolastjorinn fara og versla tessar baekur, tannig ad nu turfa krakkarnir ekki lengur ad deila bokunum jafn mikid, i eldri bekkjunum turftu alltaf fimm til sex ad deila einni bok og i yngri bekkjunum voru ekki einu sinni til baekur! Tannig ad tetta mun breyta miklu fyrir skolann.

Sennilega verdur afgangur til ad lata steypu a golfin inni i stofunum..eins og er ta er bara drulla og steinar sem er mjog osmekklegt og gerir “skolabekkina” mjog valta.

Ad lokum munum vid kaupa sma dot handa krokkunum til ad leika ser med i frimo og i hadeginu, bolta, sippubond og fleira :)

Hvad vardar mat ta langar mig til ad gera samning vid eitthvad kenyskt fyrirtaeki sem ser teim fyrir um mat..svo tad se stodugt..ekki ad vid borgum nokkrar maltidir og svo er tad buid tegar peningurinn er buinn. Vid erum i “samningavidraedum” vid Indverska fjolskyldu sem sagdist geta skaffad skolanum hadegismat, vonum ad tad gangi upp :)

Hlakka mikid til ad syna ykkur myndbond og myndir tegar eg kem heim!

I sidustu viku do stelpa i skolanum minum (eg hafdi reyndar aldrei hitt hana, hun var buin ad vera lasin fra tvi eg kom), hun var 10 ara. Tad var mjog sorglegt, vid forum a “kistulagninguna”, eg, nokkrir kennarar og nokkrir krakkar sem sungu bibliulog fyrir foreldrana. Tetta var mjog serstok upplifun, ad labba i gegnum slummid til foreldranna sem eru svakalega fataekir, tad var samt tekid vel a moti okkur og haldin var sma kvedjustund. Eins og eg segi ta er tetta sennilega serstakasta upplifun sem eg hef upplifad. satum i hring i drullu fyrir framan “heimilid” teirra sem eru alplotur eins og allt tarna, litil kista, krakkarnir ad syngja, prestur a tanum ad messa og foreldrarnir mjog midur sin ad sjalfsogdu. Tad var samt eitthvad fallegt vid tetta, tad var skyjad og sma gola og gomul kona (amman held eg) song einhverja songva og dansadi.

Tad er hefd fyrir tvi ad koma med sma pening og flestir hafa ekki efni a ad gefa meira en orfaa tikalla, foreldrarnir voru tvi mjog takklatir tegar eg gaf teim tusundkall. Tad er mjog skritid ad svona litill peningur geti hjalpad einhverjum heilmikid!

Tad skritnasta vid tetta var ad foreldrarnir eru alveg vissir um ad nagranni teirra se norn og hun hafi drepid stelpuna med tvi ad lata a hana alog eda eitthvad svoleidis!!…..otrulegt hvad margt er allt odruvisi en heima.

Annars er allt gott ad fretta, timinn lidur svakalega hratt, tad er rett vika i ad Bjarki komi! farin ad hlakka mikid til :)

En takk aftur allir kaerlega fyrir ykkar framlag!!! eg mun sennilega loka reikningum um helgina til ad hafa tima til ad radstafa ollu :) Tangad til er enn allt opid :)

Bestu bestu kvedjur

Hildur Soffia

Skráð undir: kenya

Margt lítið gerir eitt stórt!

22
Jun
22

Takk allir æðislega fyrir allan stuðninginn. Ég á oft erfitt með mig þegar ég er að lesa kommentin ykkar, fer hjá mér við öll hrósin, en ég er að gera nákvæmlega það sama og aðrir mundu gera ef þeir væru hérna. Það er mjög gaman að sjá hvað margir eru áhugasamir um að hjálpa. Ég er mjög heppin að eiga ykkur að J

Takk Gerður fyrir uppástunguna með að láta bauk ganga á bakkaröltinu, það er ekki slæm hugmynd, hver hundraðkall hjálpar J. Ég er búin að stofna reikning, ég reyndi að hafa nafnið á skólanum en það gekk ekki þannig að nafnið mitt kemur upp þegar það er millifært. Svo mundi ég taka peninginn út hér í Kenýa og ráðstafa honum með skólanum, það sem peningurinn mundi fara í er eitthvað af eftirfarandi:

Girðing

Skólabækur og skólaefni

Dót

Mat handa börnunum

Málningu (ef ég næ ekki að fá hana fría, ég er enn að bíða eftir svari).

Reikningsupplýsingar fyrir áhugasama:

reikn: 0372-13-111250

kt. 080383-4449

Ég ætla svo að reyna að láta börnin teikna mynd handa þeim sem lögðu sitt af mörkum J

Annars er allt gott héðan, skólinn er eins og venjulega, fer og kenni og öðru hvoru vinn ég í tölvunni, meðal annars að skrifa blogg og sendi beiðnir á fyrirtæki hér í Kenýa til að hjálpa skólanum. Helgin var alveg frábær. Ég hitti íslenska stelpu frá Akureyri sem ég hef aldrei hitt áður, það kom svo í ljós að við eigum fullt af sameiginlegum vinum og vorum báðar í MA, heimurinn er mjög lítill!, Hún verður hérna í nokkra daga í viðbót þannig að við ákváðum að leika okkur saman. Við fórum saman í gírafagarð þar sem hægt er að gefa þeim að borða og klappa þeim, meira segja kyssa þá, ég fékk góða tungu! Svo fórum við á Rugby leik sem er stór hátíð hérna í Kenýa, þetta er meira félagshittingur eins og verslunarmannahelgin eða álíka.

Á sunnudaginn fór ég í smá ferðalag, semi safari.. í garð sem heitir Lake Nakuru, það var alveg magnað, við vorum fjögur og  keyrðum í ca þrjá tíma í garðinn, svo eyddum við öllum deginum þar og sáum fuuulllt af dýrum. Garðurinn er þekktastur fyrir að vera með fullt af flamingo fuglum, það var endalaust af þeim og ekkert smá flott að sjá bleiku skýin af fuglunum, svo voru hjarðir af buffalos, það var mikið af öpum sem hljópu viltir um..meðal annars uppá bílinn okkar, svo sáum við gírafa, sebrahesta, nashyrninga, dádýr, villisvín og fleiri dýr. Í garðium er einn staður til að fara úr bílnum til að borða nesti..hann á að vera alveg öruggur, þannig að við komum okkur vel fyrir á teppi, tilbúin að fara að smyrja brauðið okkar og borða bananana okkar þegar stór api kemur æðandi að okkur og rænir öllu nestinu okkar!! Svo sat hann alsáttur og gúffaði þetta í sig fyrir framan okkur, sem betur fór tók hann bara mat. Þannig að helgin er búin að vera mjög fín.

Eins mikið og ég er að njóta þess að vera hérna þá er margt sem fer óheyrilega í taugarnar á mér. Sérstaklega sumt fólkið hérna..það er eins og það kunni sig engan veginn. Endalaust að biðja um pening, mat eða annað..ekki bara götufólk (það er kannski skiljanlegt að þau biðji mann um pening) heldur er meira segja afgreiðslufólk í búðum eða í strætóum líka oft að biðja mann um pening eða stinga uppá að ég kaupi eitthvað fyrir þau. Fólk grípur í mann, eltir mann, kallar mann musungu og er alveg æst í að láta mann fá númerið sitt eða biðja um mitt. Margir að leyta eftir mútum, til dæmis þegar við fórum í Nakurugarðinn lentum við í vandræðum þrisvar sinnum, í öll skiptin var verið að leita eftir mútum, tvisvar var okkur hótað að þau ætluðu að fara með okkur til löggunnar..alltaf út af einhverju smáatriðum…þau reyna alltaf að finna einhverja leið til að ná pening af manni. Við höfðum greinilega keyrt einhvern veg sem mátti ekki keyra…en hann var ekkert merktur og aðrir bílar voru að keyra þar, þannig að við héldum að það mætti keyra þar. En eftir mikið ströggl og þras þá fengum við að halda áfram..án þess að borga. Matatubílstjórarnir eru mest pirrandi, þeim liggur alltaf svo á að fylla matatuinn sinn til að geta lagt af stað í sinn rúnt þannig að þeir ljúga hægri vinstri um hvert þeir eru að fara..svo láta þeir mann út á miðri leið og segjast hafa misskilið eða neita að hafa sagst ætla að fara á þann stað sem ég þarf að fara á. Ég hef ósjaldan lent í vandræðum út af því að þeir skrökva endalaust til um hvert þeir eru að fara. Svo þarf maður alltaf að vera á varðbergi um verð, því margir rukka mann miklu meira því maður er hvítur, þannig að það er endalausar samningaviðræður þegar maður er að kaupa eitthvað..maður veit hvað það kostar en það er alltaf reynt að fá meiri pening.

Þetta á að sjálfsögðu ekki við um allt fólk í Kenýa, margir eru mjög yndælir, en þetta er mjöög algengt og þessi áreitni er farin að fara pínu í mig.

Það er líka mjög pirrandi að þurfa alltaf að vera á mega varðbergi um allt dótið sitt, þó ég hafi sem betur fer aldrei lent í miklu (usb lyklinum mínum var stolið) þá eru margir í kringum mig rændir..margir símar hafa verið stolnir, heilu bakboparnir, veski og fleira, bara núna um helgina var síma og veski stolið af einni vinkonu minni, einum síma af vini mínum og öðrum síma af vinkonu minni. Það sem gerist er að annað hvort veður fólk einhvernveginn í veskið/töskuna manns án þess að maður taki eftir því eða hreinlega sker veskið/töskuna á meðan maður ber hana og nær þannig í eitthvað úr hólfum. Ég reyni því alltaf að hafa bakpokann framan á mér (mjög smart, I know) og hef hann í kjöltunni þegar ég er einhversstaðar..

Eeeen, ég reyni að velta mér ekki mikið uppúr þessu, verð víst bara að taka þessu eins og þetta er..

Annars er ég farin að hlakka mikið til að fá Bjarka og ferðast meira J

Takk í bili og vona að fólk taki vel í söfnun J eins og ég segi, hver hundraðkall hjálpar!

Bestu kveðjur

Hildur Soffía

Skráð undir: kenya

Life goes on..

17
Jun
16

Margt hefur gerst frá því ég bloggaði síðast!

Fyrir helgi var ég að kenna í skólanum og heyrði að einn kennarinn var að kalla upp einn og einn nemanda til að “refsa” þeim fyrir eitthvað…sennilega eitthvað smávægilegt. Hann notar prik og lemur þau fast og mörgum sinnum í bakið, ég gjörsamlega gafst upp á að hlusta á þetta, sérstaklega að heyra börnin gráta þannig að ég strunsaði inn í stofuna með kökkinn í hálsinum og bað hann um að hætta. Hann kippti sér lítið upp við það og hélt áfram að lemja stelpu sem hágrét, þannig að ég náði í annan kennara sem síðan stoppaði hann. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við þetta og hef í raun ekki áhuga á að styrkja eða hjálpa skóla þar sem þetta viðgengst, þannig að ég talaði við skólastjórann. Í kjölfarið var haldinn smá fundur ásamt skólastjóra, hann var engan veginn sáttur við þetta og bað alla kennara að hætta þessu..so far hef ég ekki orðið var við þetta þannig að ég er virkilega ánægð með þetta og vona innilega að þetta haldist.

Í gær komu fréttamenn frá stærstu sjónvarpsstöðinni í Kenýa þar sem þau eru að gera heimildarmynd um skóla í slömmum. Þau tóku langt viðtal við mig og tóku upp þegar ég var að kenna, vonandi vekur þetta athygli á þörfinni þarna og það væri gaman ef ég mundi sjá þetta.

Tveir mánuðir er ekki langur tími til að gera eitthvað stórkostlegt fyrir skólann en ég ætla að reyna eins og ég get að skilja eitthvað eftir mig og hugsanlega með hjálp ættingja og vina heima. Nokkrir hafa boðist til að senda eitthvað en ég er ekki viss um að það gangi upp en Bjarki kemur til mín eftir þrjár vikur og ef einhver hefur áhuga á að senda eitthvað með honum þá ætti það að ganga, en það fæst í raun allt hérna í Nairobi og það er ódýrara en heima, þannig að hugmyndin er að stofna reikning ef áhugasamir vilja leggja eitthvað af mörkum, ég mun tala betur um það í næstu færslu. En ef einhver kemst yfir til dæmis ókeypis fyrirtækjapenna eða eitthvað svoleiðis þá er náttúrulega tilvalið að senda það með honum.
Það sem mig langar að gera er að mála skólann að utan, ég er búin að safna saman fólki og finna fyrirtæki sem ætlar sennilega að styrkja okkur með málningu, þannig að það er nokkuð klárt
Mig langar líka mikið til að safna pening fyrir girðingu sem kostar um það bil 20.000 kr. en hún mundi skipta þau alveg svakalega miklu máli því hún mundi girða skólann alveg af og koma í veg fyrir að ókunnugir labbi inn og út, yfirvöld gerðu líka kröfu um að þetta yrði gert þannig að þetta skiptir þau miklu máli
Svo langar mig til að kaupa slatta af dóti fyrir börnin og kennsluefni, ég vona innilega að þetta gangi upp.
Svo langar mig að gera video til að láta á netið í þeim tilgangi að laða að fleiri kennara en það er mikill skortur á þeim.

En þetta eru nokkrar hugmyndir og ekki víst að ég nái að framkvæma allt þar sem ég er eini sjálfboðaliðinn í skólanum..en ég mun vinna betur í þessu á næstu dögum.

Um helgina fór ég í afmæli og í grillveislu, það var virkilega gaman. Svo fór ég í heimsókn í annan skóla þar sem við (sjálfboðaliðar) spiluðum fótbolta við krakkana í skólanum. Þetta var heilmikil keppni og krakkarnir voða spenntir. Eins vandræðalegt og það er þá unnu krakkarnir með miklum mun og mörg þeirra spiluðu á tánum! Í miðjum leik kom hjörð af beljum og nautum og krakkarnir kipptu sér ekkert upp við það og héldu áfram að spila þrátt fyrir að nautin hoppuðu trillt þarna um..okkur hvítingjunum var hins vegar ekki alveg sama.

En já…þetta er það helsta í bili sem ég man eftir.

Skráð undir: kenya

Fyrsta vinnuvikan lidin

10
Jun
17

Eg vil þakka ollum sem kommenta, tad er virkilega hvetjandi og gaman ad vita ad eg er ekki ad blogga til einskis 
Fyrsta vinnuvikan var svoltítið ströng og það var mikið sem þurfti að meðtaka. Ég vakna 6:30 og er komin í skólann um það bil átta, það tekur rúmlega klukkutíma að fara í og úr skóla. Svo kenni ég til sirka hálf fjögur, leik aðeins við krakkana og fer heim eða í bæinn.
Ég kenni stærðfræði, félagsfræði, ensku, vísindi og creative art. Það kemur kannski ekki á óvart en mér finnst lang skemmtilegast að kenna creative art enda fæ ég alveg að sjá um það og kenni alla þá tíma. Börnunum finnst það líka mjög skemmtilegt, það er því miður lítið annað hægt að gera en að teikna út af skorti á öðru efni en ég ætla að láta þau búa til armbönd og teikna á stóran pappa til að skreyta stofurnar..sem eru mjög hrörlegar.
Eins og ég hef áður sagt þá eru aðstæðurnar frekar ömurlegar og fátæktin er svakaleg! Börnin eiga helst sjálf að skaffa blýanta og skrifblokkir en mörg hafa ekki efni á því þannig að þau þurfa stundum að skiptast á að nota blýantana, ég hélt ég mundi svo missa andlitið þegar ég sá þau draga upp gamalt riðgað rakvélablað til að ydda þá! Ég vissi að það væri til alvöru yddari inná “skrifstofu” þannig að ég náði í hann og hjálpaði einum að ydda, þau voru alveg furðulostin yfir þessu apparati og mikill hópur myndaðist í kringum mig til að horfa á meðan ég var að ydda. Núna ydda ég fyrir krakkana og það er voða sport. Krakkarnir eiga engin leikföng og það er alveg ótrúlegt hvað þau nota til að leika sér með. Þau hafa útbúið fótbolta með því að binda saman eitthvað rusl, svo hafa þau greinilega fundið gamla spólu eða eitthvað því þau nota teip úr spólu til að fara í teygjutvist, tau nota steina sem bila svo sá ég eina húlla með gömlum hjólbarða af hjóli. Það er endalaust svona sem þau nota til að leika sér með..í gær fundu þau til dæmis einhvern ruslplatta og gátu bundið einhvern spotta í hann, svo eyddu þau öllum deginum í að skiptast á að draga hvort annað fram og til baka á þessu.
Það er kamar í skólanum en það er búið að loka fyrir hann því allt var látið fara í ánna sem rennur við hliðina á skólanum, sum börnin nota hann samt ennþá en annars er bara skokkað út fyrir skólastofuna og látið gossa..ég læt það eiga sig að fara á klóstið í skólanum. Það eru engin ljós í stofunum og stundum getur verið mjög dimmt inni og erfitt að kenna, einnig eru veggirnir afskaplega þunnir á milli kennslustofa og mikið af götum þannig að það er ekki mikill friður til að kenna. Það sem mér finnst verst af öllu er þegar ég heyri hina kennarana lemja börnin! Það er víst ekki óeðlilegt í Kenýa og fólk segir að ég muni venjast þessu..en þetta er eitthvað sem mig langar engan veginn til að venjast. Þessi skoli á að vera byggdur a ast og umhyggju og tad a ad vera bannad ad lemja bornin..skolastjorinn er ekki a svædinu tannig ad eg held ad sumir kennarar nyti ser tad. Ég reyni ad bidja kennarana ad gera tetta ekki en tad þydir litid. vonandi breytist þetta.

Ég man þegar ég var lítil og einhver sagði mér að í sumum löndum þætti fólki hvítingjar skrítnir og það væri starað alveg jafn mikið á þá eins og sumir krakkar stara á svart fólk heima..mér fannst það alveg fáránlegt. Nú er ég heldur betur að komast að því að svona er það víst..og ég er alveg viss um að fólk starir miklu meira hér heldur en nokkurn tíma krakkar horfa á svart fólk heima. Ég er eiginlega alltaf eina hvíta manneskjan á svæðinu og ó boy hvað fólk starir, það er ekki fyndið..það er kallað á mann úr órafjarlægð og hóað og blístrað. Hvítingjar hér í Kenýa eru kallaðir Musungu..mér skilst að það sé næstum því eins og the n word fyrir svertingja..nema fyrir hvítingja. Þannig að margir kalla á eftir manni musungu og sérstaklega krakkar..maður heyrir “musungu, musungu” langar leiðir, sérstaklega í slumminu þar sem hvítingjar koma mjög sjaldan.. ég reyni yfirleitt að leiða það hjá mér eða heilsa uppá krakkana..þá hlaupa þeir oft í burtu skríkjandi eftir að þeir hafa tekið í hendina á mér.

Þetta er allt að venjast og það sem ég er óendanlega þakklát fyrir er host fjölskyldan mín, tvær yndislegar systur sem búa í ágætis húsi og í öruggu hverfi. Það er ekki rennandi vatn og stundum er ekkert vatn..en hér er rafmagn og klósett! Á sunnudaginn eldaði ég fyrir þær pizzu að þeirra beiðni, þær höfðu einu sinni fengið pizzu og þótti þeim hún mjög góð, þannig að ég er sátt við árangurinn..takk fyrir uppskriftina Þórdís ;)

Já ég gleymdi að segja að ég fór út á lífið þeim þeim systrum á föstudagskvöldið..sem var interesting..það sem mér þótti furðulegast var að um miðja nótt var berfætt kona með eins mánaða gamalt barn að betla pening, það er víst ekki óalgengt..svo sá ég dauðann mann liggja í götunni..hann leit allavega út fyrir að vera dauður..hann lá á miðri götu í skrítinni stellingu og slatti af blóði..einhver hafði keyrt á hann. En enginn gerði neitt!! Einn maður stóð yfir honum og potaði eitthvað í hann og nokkrar hræður hægðu aðeins á sér til að horfa..Skrítið.

Skráð undir: kenya

Fyrsti slum dagur/vinnudagur og innflutningur

4
Jun
15

Daginn eftir ferðalagið fór ég með stelpu úr samtökunum í slummið..hún fór með mér til að sýna mér skólann sem ég verð að vinna í og til að hjálpa mér að rata þangað. Ég held það sé alveg sama hvað maður er búinn að lesa sér mikið til, horfa á mörg video eða skoða margar myndir…það ert sennilega ekkert sem getur undirbúið mann undir það sem maður er að fara að sjá. Þetta er alveg hræðilegt, fólk býr í álplötum, yfirleitt mjög margir á sama stað, pínu litlir stígar milli húsa sem var fullur af drullu og rusli, fullt af börnum grenjandi og ráfandi um..það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu. Við fórum til dæmis að heimsækja eina konu sem stelpan þekkti. Þessi kona var nýbúin að eignast barn. Hún, maðurinn hennar og nýja barnið bjuggu í sirka 4 fermetra skýli sem samanstóð af pappakössum og álplötum, gólfið var bara drulla, það var að sjálfsögðu ekkert rafmagn né vatn, aðeins eitt rúm þarna inni og ‘útidyrahurðin’ var lak!
Við fórum svo í skólann, það var mjög gaman og krakkarnir spenntir að sjá mig. Þau læra við mjög slæmar aðstæður, skólastofurnar eru álplötur, þar er ekkert gólf, þannig að það er bara drulla og steinar, þau fá lítið sem ekkert að borða, flest eru HIV smituð, munaðarlaus eða einhvernveginn lasin, þau eru til dæmis öll með orma, það sést á augunum þeirra, hvítan er eiginlega brún. Þau eru með einhverjar kennslubækur en þau þurfa að deila þeim, þannig að það eru kannski fimm krakkar að lesa eina bók á sama tíma. Ég er eini kennarinn frá öðru landi, hinir kennararnir eru fólk úr slumminu sem hefur hvort eð er ekkert annað að gera, ég var til dæmis að fylgjast með einni kenna stærðfræði og mörg dæmin hjá henni voru vitlaus. Mér skilst líka að þau lemji börnin eitthvað!
Þrátt fyrir þetta allt þá virtust börnin mjög hamingjusöm, voru mikið að leika sér í frímó og hlógu mikið.
Þessi dagur var bara heimsókn og ég átti ekki að byrja að kenna fyrr en daginn eftir. Sama kvöld flutti ég inn á “host” fjölskylduna mína sem er afar næs. Hún býr samt svolítið langt í burtu, ég er með eigin herbergi í húsi með veggjum! En það er ekkert rennandi vatn..það venst. Hérna búa tvær systur sem tóku mjög vel á móti mér 

Fyrsti vinnudagurinn! Ég var mjög stressuð að fara ein í vinnuna, sérstaklega þar sem ég hafði aldrei farið frá nýja staðnum mínum og hafði aldrei farið ein í Matatu..það er heilmikil upplifun, þeir eru eitthvað svo óöryggir, fólk hoppar oft í og úr á ferð og það er mikið rænt í þessum bílum, það er engin tímaáætlun og það er ekki hægt að treysta á að þeir komi. Ég var rúman klukkutíma á leið í vinnuna og mætti rétt fyrir fyrsta tímann þannig að mér var hent beint í djúpu laugina án nokkurs undirbúnings. Sem betur fer var fyrsti tíminn “creative art” þannig að ég lét þau bara teikna myndir, þau voru mjög spennt yfir því. Ég lét þau teikna mynd af sjálfum sér í dag og svo aðra af sér þegar þau verða 60 ára. Þeim þótti það mjög gaman, það var mjög athyglisvert að á annarri hvorri “60 ára” mynd teiknuðu þau sig með byssur og sveðjur! Svo kenndi ég stærðfræði, félagsfræði og ensku, allt fjórðu og fimmtu bekkingar. Þannig að fyrsti dagurinn var ekki svo slæmur..nema að ég villtist á leiðinni heim…það endaði með því að hostsystir mín náði í mig labbandi.

Skráð undir: kenya

Ferdalag

4
Jun
0

Nú er ég “löngu” komin heim úr ferðalaginu en mig langar aðeins að skrifa um það.
Við keyrðum 3 tíma í burtu frá Nairobi í Matatu, sem er algengasti ferðamátinn hérna. Matatu er gamall beiglaður boxbíll sem búið er að spreyja í klessu, sætin eru öll rifin og skítug og það er mjöög mikill hávaði í honum, Kenýabúum finnst mjög gaman að spila rapp/popp alveg í botn.
Allavega..við keyrðum af stað en vorum stoppuð 5 sinnum á leiðinni af löggunni sem var oft með eitthvað tilbúið múður aðallega til að þyggja mútur bara út af því að þetta var fullur bíll af hvítu fólki. Til dæmis handtók hún manninn sem var að rukka því hann var ekki í vesti og hún heimtaði að við mundum borga til að geta haldið áfram..sem betur fer voru Kenýa búar með okkur í ferðalaginu sem náðu að tala við lögguna og við fengum að halda áfram..en rukkarinn var samt handtekinn.
Það var mjög gott að komast úr Nairobi sem er mjög undarleg..skítug, skrítið fólk, mikið fólk, hávaði, óöryggi og fleira..þannig að það var mjög gott að “anda” aðeins. Á landsbyggðinni er mikið að sjá..ef ég hefði verið að keyra hefði það tekið 10 tíma því ég hefði stoppað á mínútu fresti til að taka myndir..því miður var það ekki hægt. En á leiðinni sá ég sá meðal annars fullt af börnum sem drógu geitur á eftir sér í bandi, konur að bera vatn á hausnum, bíl sem var að ferja banana og bananahrúgan var stærri en bíllinn, það var bara endalaust mikið að sjá á þessari leið sem ekki er hægt að lýsa.
Við (krakkar úr samtökunum AIESEC) komum á leiðarenda sem var uppi í fjalli, frændi eins sem var með okkur (Kenýubúi) átti heimili þarna í fjöllunum þar sem hann var með geitur og hænur sem hann lifði á. Þar tjölduðum við og fengum síðan leiðsögn í skóginum í kring. Hann var nýbúinn að láta upp fílagirðingu þar sem fílar voru oft að koma inná hans svæði, en við fórum út fyrir hana og sáum nýlegin fílaspor og fílaskít,,en við sáum enga fíla..en við sáum fullt af öpum..mjög skemmtilegt að sjá þá svona villta í náttúrunni. Það var einn stór api með unga..kannski simpansi..og hún var mjög aggressív þannig að við forðuðum okkur fljótlega. Frændinn átti líka 4 hunda, hann átti víst 6 en blettatígrar komu víst fyrir tveimur vikum og átu tvo!! Það var líka mjög skrítið að um kvöldið þegar var komið kolniðamyrkur og hundarnir fóru að gelta ógurlega þá sögðu þau skýringuna vera að það væri hugsanlega blettatígur á ferðinni..mjög hughreistandi þegar maður skreið svo inn í tjaldið! En það var enginn étinn og þetta var bara mjög gaman.
Það var alveg svakalegur hiti og ekki hjálpaði að við vorum alltaf að gera eitthvað..í leikjum eða í fjallgöngum, ég hef aldrei upplifað annan eins hita, ég bar á mig sólarolíu en gleymdi víst bakinu þannig að ég er skaaaðbrunnin þar..það gjörsamlega ríkur af því svæði og ég held það stefni í að ég fái blöðrur þar . Það var samt gott að koma heim á hostelið og “sturta” af sér skítinn.

Skráð undir: kenya

Hostel life

29
May
6

So far hef eg litid gert, eg svaf i 17 tima fyrstu nottina her og 14 tima ta naestu..tannig ad eg hef verid agaetlega treytt sennilega.

Hostelid sem eg er a er mjog fint, tannig sed..midad vid ad tetta er kenya..Klostid virkar reyndar eitthvad takmarkad, tad er ekki ljos inna “badi ” tannig ad eg pissa i myrkri og er heppin ef eg nae ad sturta nidur.

Fyrsta daginn for eg i sturtu ur bolla tvi sturtan virkadi ekki..en hun virkadi i dag tannig ad eg gat skellt mer i stutta sturtu..tad var mjog naes,,

Adstaedurnar her eru alveg allt i lagi, en ef tetta vaeri einhversstadar annarsstadar ta hefdi eg potttett snuid vid a stadnum!

Hostelid er girt af med hlidi og her eru verdir..fyrir utan hlidid er allt annar heimur! eg skrapp ut i gaer til ad kaupa vatn tvi mer var sagt ad tad vaeri sjoppa vid hlidina..tegar eg kom ut var migandi rigning, fullt af haenum og folk rafandi um i drullunni a tanum sem stardi a mig, “sjoppan” var litill bas ur alplotum og einhver kona inni asamt trilljon risastorum flugum og hun seldi nokkrar vorur..eg var fljot ad snua aftur til baka med vatnid mitt.

I dag nennti eg reyndar ekki ad hanga inni tannig ad eg safnadi hugrekki og for ut og labbadi i haskolann til ad hitta eitthvad folk, tetta var halftima ganga og meen hvad eg sa mikid a leidinni! Tad er svo fyndid ad a einu horni er kannski alveg saemilega fint hotel og svo a horninu a moti er kannski fotalaus madur ad selja onyta banana, umkringdur rusli og reittum haenum. Tad er mikid af folki sem virdist bara rafa um allslaust..ekki i skom og er i reittum og gotottum fotum, tad er lika mikid af folki sem liggur bara her og tar..eg vil meina ad tau seu sofandi :) . Mengunin er lika svakaleg og skritin lykt..

Eg akvad ad taka svo taxa heim tar sem tad styttist i ad tad faeri ad dimma..umferdin var svakaleg og leigubilsstjorinn gjorsamlega la a flautunni a milli tess sem hann hoppadi ur bilnum til ad reyna ad stjorna umferdinni og oskradi eitthvad a Swahili..sem er btw frekar fyndid tungumal. Ja umferdin herna er mjoog skritin, folk keyrir bara einhvernveginn og flautar!

Eg vildi ekki taka myndavelina med mer i dag,,og tad sem mig langar mest til ad taka myndir af eru ekki beint myndavelafriendly zone, eg hef heyrt ad folki se illa vid ad teknar seu myndir og svo er eg lika bara hraedd um myndavelina..tannig ad eitthvad verd eg bara ad reyna ad utskyra :)

A morgun er eg ad fara i ferdalagid asamt ollum odrum, eg hlakka mikid til og held tad verdi mjog skemmtilegt..eg legg af stad i fyrramalid og kem heim a manudag

Va hvad eg var dugleg ad blogga i tetta skiptid :)

eg kved ta i bili

p.s.

Allar einkunnir komnar i hus, og er bara mjog satt vid taer

8

8,5

9

9

9,5

Skráð undir: kenya

Komin a leidarenda

27
May
8

Finally! eg er komin! eftir mjog svo langt ferdalag var tekid a moti mer a flugvellinum og farid med mig a skrifstofu samtakanna, eg er adallega bara buin ad vera ad rolta um baeinn asamt fylgdarlidi, skipta pening og fa mer kenyskt simanumer og eg var strax dreginn a barinn tannig ad eg er buin ad renna nidur einum bjor :)

eg er buin ad fa agaetis leidbeiningar hvernig eg a ad haga mer oryggislega sed, til daemis tegar eg var ad skipta peningnum ta atti eg ad lata einn sedil i einn vasa..tannig ad eg var med pening i 7 mismunandi vosum ef ske kynni ad einhver naedi ad troda ser i einn vasann :)

eg verd a moteli fyrstu tvaer naeturnar og svo fer eg i ferdalag um helgina med hinum hjalparsstarfsadilum, kem heim a manudag og flyt ta tangad sem eg a ad vera..sem er inna stelpu sem er i samtokunum :) mer lyst mjog vel a tad..

eg fer ekki i skolann fyrr en a tridjudag svo, hlakka mikid til ad sja krakkana..tannig ad tetta leggst bara mjog vel i mig!!

Eg keypti inneign adan i kenyska numerid mitt og klaradi tad allt med tvi ad tala vid Bjarka i 7 sekundur..tannig ad eg reikna ekki med tvi ad hringja mikid heim..reyni eins og eg get ad fara frekar a netid :) en eg verd med kveikt a islenska numerinutannig ad tad er haegt ad na a mer ef tad er eitthvad :)

ta segi eg bara bless i bili

kv.

Hildur Soffia

Skráð undir: kenya

Þá hefst ferðin!

25
May
5

Jæja…ég ákvað að “blogga” á meðan ég væri úti til að geta komið fréttum á marga í einu :)

Ég er sem sagt á leið til Kenýa í hjálparstarf í tæpa tvo mánuði, ég verð í Nairobi í einu “slumminu” þar að kenna börnum sem eru HIV smituð og munaðarlaus.

Nú er ég búin að pakka og er skríða í rúmið, á morgun hefst heilmikið ferðalag, þar sem ég flýg til London, Dubai og enda svo í Nairobi, Kenýa um miðjan dag á miðvikudag!

Ég er svakalega ánægð að loksins sé komið að þessu þar sem ég er búin að vera að stefna að þessu lengi!

Hlakka til að skrifa næstu færslu, hún verður örugglega áhugaverðari en þessi :)

mbk

Hildur Soffía

Skráð undir: kenya